Skammt sunnan Hólmavíkur.
Þiðriksvallavatn í Þiðriksvalladal fyrir miðri
mynd. Innan við Þiðriksvallavatn er eyðibýlið
Þiðriksvellir, Nautadalur liggur upp frá Þiðriksvöllum,
vinstramegin við Nautadal er Húsadalur og eftir honum rennur
Húsadalsá, næst kemur Víðidalur og eftir
honum rennur Víðidalsá einnig ber bærinn neðst
í honum nafnið Víðidalsá, bærinn þar
fyrir neðan heitir Hnitbjörg. Neðst til vinstri er vogur
sem heitir Stórgrýtisbugur, Þverárvirkjun er
ca. fyrir miðri mynd. Hún er kennd við Þverá
sem rann úr Þiðriksvallavatni áður en virkjað
var 1953. Áin sem bugðast niður eyrarnar heitir Víðidalsá
og í hana rennur Húsadalsá og affallið frá
Þverárvirkjun. Neðst og lengst til hægri er 9 holu
golfvöllur ásamt íþróttavelli og það
svæði kallast Skeljavíkurgrundir. Réttarvík
er vinstra megin vi ósa Víðidalsár.
|