| Séð ofan frá
Steingrímsfirði í suðvesturátt yfir í
Gilsfjörð. Neðst til vinstri er bærinn Húsavík
og vegurinn upp á Tröllatunguheiði beint út frá
þjóðveginum, sem þar liggur hjá. Vogurinn
neðst á miðri mynd sem vegurinn liggur yfir nefnist Tungugrafarvogur.
Neðst til hægri er bærinn Hrófá við samnefnda
á. Á miðri mynd er Tröllatunguheiði og
undir henni fyrir miðju bærinn Tröllatunga. Til vinstri
við hana er Tungudalur og eftir honum rennur Tunguá en hægra
megin Arnkötludalur og rennur Arnkötludalsá eftir honum.
Fremst í dalnum er bærinn Arnkötludalur sem kominn er
í eyði. Þar sem Tunguá og Arnkötludalsá
sameinast heitir Hrófá. Lengst til vinstri er Miðdalur
og til hægri við hann Heiðabæjarheiði.
Efst til hægri glittir í Reykjanes og Þorskafjörð. Rætt hefur verið um að leggja mætti nýjan veg í Arnkötludal hægra megin við Arnkötludalsá og því komast hjá ræsa- eða brúargerð. |
| Ljósmynd: Jónas Guðmundsson, ágúst 1999 Næsta mynd (X) |