Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur


Milli Borgarness og Reykjavíkur eru nú 74 km.  Við tilkomu brúar yfir Borgarfjörð sunnan Borgarfjarðar, sem vígð var í september 1981 styttist leiðin nokkuð.  Við opnun Hvalfjarðarganga í júlí 1998, styttist leiðin um 42 km.  Alla leiðina frá Borgarnesi í Grafarvog er vegurinn aðeins með eina akrein í hvora átt. Með tilliti til umferðarþunga mætti vel rökstyðja að breikka þyrfti veginn og má benda á hugmyndir þar að lútandi sem fram koma í grein, sem vísað er til hér að neðan.  Frá Kjalarnesi til Reykjavíkur eru hugmyndir um að leggja nýjan veg, svonefnda Sundabraut, yfir firði og fram hjá Mosfellsbæ, sem mjög mundi greikka fyrir umferð auk þess sem leiðin á milli styttist um nokkra km.  Ef allar hugmyndir ganga eftir má vel gera ráð fyrir að innan ekki margra ára þurfi ekki að verða meira en 65 til 70 km á milli Borgarneness og miðbæjar Reykjavíkur og ekki nema 40 til 45 mínútna akstur við bestu aðstæður, en í dag duga vart minna en 50 mínútur til ein klukkustund.

Til eru hugmyndir um að leggja veg yfir Leirárvog, sem ekki stytti leiðina milli Borgarness og Reykjavíkur að ráði en Akranes kæmist í þjóðbraut.  Sjá m.a. hugmyndir Gísla Einarssonar, alþingismanns, í tengslum við vegagerð á þessum slóðum við gerð Hvalfjarðarganga ( X ).
 



Borgarnes og brúin yfir Borgarfjörð.
Borgarfjarðarbrú var vígð 13. sept.,
eftir sjö ára framkvæmdatíma. Brúin
er 520 metrar, sú næstlengsta á 
landinu á eftir Skeiðarárbrú.

Teiknuð mynd af svæðinu milli 
Borgarness og Reykajvíkur (X )
             Séð  inn Hvalfjörð
     Hvalfjarðargöng sjá vef Spalar hf.,
     sem rekur göngin (X)

Kjalarnes / Reykjavík
um Sundabraut (X )

Ný vegtegund. 2 + 1 
Sjá grein (X )

Borgarnes og Borgarfjörður
( X )
Hafnarfjall (X) Hafnarfjall (X) Leirvogur (X) Hvalfjörður (X)


Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
     Gestabók - Póstur



Bolungarvík / Ísafjörður     2  Ísafjörður / Dýrafjörður     3  Ísafjarðardjúp     4  Steingrímsfjarðarheiði     5  Þorskafjarðarheiði   6  Kollafjarðarheiði
Hólmavík / Gilsfjörður     8  Strandir     9  Dýrafjörður / Arnarfjörður     10  Arnarfjörður / Vatnsfjörður   11  Vatnsfjörður / Kollafjörður
12  Kollafjörður /Gilsfjörður   13  Gilsfjörður / Borgarnes     14   Borgarnes / Reykjavík    15  Reykjavík / Keflavíkurflugvöllur
..

Uppfært 01.09.2002