Syðridalur
í Bolungarvík Á miðri mynd er Syðradalsvatn
og áin úr því nefnist Ósá.
Lengst til vinstri sér í hlíðar Óshyrnu
og inn af henni er Seljadalur og Selá. Hinum megin Seljadals
er Heiðnafjall og Klettadrangurinn til hægri í fjallinu
nefnist Núpur. Innst í dalnum er Reiðhjallavirkjun.
Til hægri sér í hlíðar fjallsins Ernis.
Neðst á myndinni er bærinn Ós og til hægri
við hann hinu megin árinnar sér í flugbraut ,
sem nú er að mestu hætt að nota. Gert er ráð
fyrir að nýr vegur verði lagður í stað þess
sem myndin sýnir nær sjónum og að ný tvíbreið
brú verði byggð yfir Ósá.
|