Óshyrna.  Ysti hluti þess kafla vegarins þar sem hætta steðjar að vegfarendum vegna grjórhruns.  Þótt mikið hafi verið gert til að draga úr hættu á hruni er hún enn fyrir hendi og er þar skemmst að minnast þess þegar mikið hrun varð á bílalest sem var að koma frá krossinum í tilefni af 50 ára vígsluafmæli vegarins í ágúst 2000.  Sporhamar var þar fyrir framan sem sér í vörubílinn, en hann hefur nú að mestu verið sprengdur burt.  Þar hrundi bjarg á fólksflutningabíl árið 1950 með þeim afleiðingum að tveir fórust og nokkrir slösuðust.  Sjá má að mikið efni hefur verið fjarlægt úr hlíðinni meðfram veginum.  Þá hefur verið komið fyrir öryggisnetum og sér í þau vinstra megin.  Tilraunir hafa verið gerðar með að sá lúpínu til að binda jarðveg og sést hún á víð og dreif um hlíðina og alveg upp í efstu klettabelti lengst til hægri. 

Ljósmynd:  © Jónas Guðmundsson, september 2000 Til baka    Í aðalvalmynd    Næsta mynd 
 


 
Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetraumferð - Ár / vötn - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur



 
Bolungarvík / Ísafjörður    2  Ísafjörður / Dýrafjörður    3  Ísafjarðardjúp    4  Steingrímsfjarðarheiði    5  Þorskafjarðarheiði  6  Kollafjarðarheiði
Hólmavík / Gilsfjörður    8  Strandir    9  Dýrafjörður / Arnarfjörður    10  Arnarfjörður / Vatnsfjörður  11  Vatnsfjörður / Kollafjörður
12  Kollafjörður /Gilsfjörður  13  Gilsfjörður / Borgarnes    14   Borgarnes / Reykjavík   15  Reykjavík / Keflavíkurflugvöllur
..

Uppfært 10.11.2000