Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur

 
Eina leiðin landveginn frá Bolungarvík liggur um Óshlíð til Hnífsdals og þaðan um Eyrarhlíð til Ísafjarðar.  Oft er vegurinn um Óshlíð og stundum Eyrarhlíð varasamur vegna grjóthruns og snjóflóða. Tæpast er þó á dagskrá á allra næstu árum að gera veggöng milli Bolungarvíkurog nágrannabyggða m.a. vegna hins mikla kostnaðar sem orðinn er við að gera leiðina um Óshlíð eins öruggaog mögulegt er.  Þeir kostir sem helst hafa talist koma til greina hafa verið dregnir upp og eru sýndir hér til hliðar.   Annars vegar eldri hugmyndir og hins vegar hugmynd sem fram kemur í jarðgangaáætlun frá árinu 2000 þar sem gert er ráð fyrir að gerð verði þrenn göng, alls 4 km, í hæð núverandi vegar - gegnum Ófærurnar og Óshlíð. 

Í jarðgangaáætluninni er svohljóðandi umfjöllun um Óshlíð : . "Vegurinn um Óshlíð hefur á undanförnum 20 árum verið endurbyggður og ýmsar ráðstafanir gerðar til að auka öryggi vegfarenda vegna snjóflóða- og grjóthrunshættu.  M.a. hafa verið byggðir 3 (svo - á líklega að vera fjórir) vegskálar. Varla kemur fyrir lengur að vegurinn sén sé lokaður heilan dag, en snjómokstur og önnur vetrarþjónusta er umfangsmikil.  Meðalumferð ársins er um 670 bílar og að vetri um 450 bílar.  Á sínum tíma voru kannaðir möguleikar á gerð jarðganga til að leysa umferðarvandamál á þessari leið, og þá einkum horft til 4,2 km langra ganga milli Seljadals og Fremri-Óss í Bolungarvík.  Frá því var horfið. Öðru hvoru hafa þó aftur komið fram hugmyndir um jarðgöng til að auka umferðaröryggið enn frekar en gert hefur verið.  Ef af því yrði er líklegt að gerð yrðu þrenn göng inn í hlíðina,samtals um 4 km á lengd.  Þessi göng þyrftu vafalítið að vera tvíbreið vegna umferðarinnar,og má áætla að heildarkostnaður yrði 2- 2,5 milljarðar."

Á árinu 2002 er gert ráð fyrir að hefja gerð vegar og nýrrar brúar yfir Ósá í stað einbreiðrar brúar sem þar er nú og er gert ráð fyrir að lega hans verði nær ströndinni en nú er sjá mynd (nr. 1d ) hér að neðan. 

.Á myndunum að neðan sést Bolungarvík og nágrenni frá nokkrum sjónarhornum, m.a. með tilliti til hugsanlegrar jarðgangagerðar, svo og hlutar leiðarinnar um Óshlíð, Hnífsdal og Eyrarhlíð. 

Hér skal loks vakin athygli á skýrslu vinnuhóps Vegagerðarinar, sem gefin var út í nóvember 2002, þar sem er að finna ítarlega umfjöllun um öryggi umferðar og mögulegar úrbætur á veginum um Óshlíð og Súðavíkurhlíð. (X
 


 
Eldri hugmyndir ( X )um legu 
jarðganga milli Bolungarvíkur 
og nágrannabyggða. 
.
Tillögur ( X ) um legu jarð-
ganga milli Bolungarvíkur
og nágrannabyggða
samkvæmt jarðganga-
áætlun 2000(X ).
..


1a Bolungarvík-sumar ( X
(Ath. hlekkur á annan vef)
 1bBolungarvík - vetur (X )            1c Bolungarvík úr Tungudal ( X )  1dSyðridalur í Bolungarvík
 ( X )
 1e Syðridalur-Hnífsdalur ( X )
2a Óshlíð, Óshyrna 2b Óshlíð, Óshyrna, Þuríður 2c Óshlíð,Óshyrna 2d Óshlíð, Óshyrna 2e Óshlíð,/ Óshyrna
3a Óshlíð, Óshyrna 3b Óshyrna, Traðarhyrna 3c Óshlíð, Kálfadalur 3d Óshlíð, Arafjall, vegskálar  3e Óshlíð, Kálfadalur, Þuríður 
4a Óshlíð, Arafjall, vegskálar 4b Óshlíð, Arafjall, vegskálar  4c Óshlíð, Arafjall, vegskálar 4d Óshlíð, Arafjall, vegskálar 4e Óshlíð, Seljadalur 
5a   Búðarhyrna, Seljadalur  5b Búðarhyrna  5c Skarfasker Búðarhyrna Seljadalur  5d Hnífsdalur, Búðarhyrna,
Arafjall
5e Eyrarhlíð, Búðarhyrna
6a Hnífsdalur 6b   Eyrarfjall, Hnífsdalur   6c   Eyrarfjall,Arafjall,
Traðarhyrna
 6d 6e Ísafjörður, Eyrarhlíð ( X )
7a Óshlíð - Skarfasker  (X ) 7b Hnífsdalur  (X ) 7c Óshlíð - Traðarhyrna  ( X )  7d ( X 7e Óshlíð á vetrarkvöldi  ( X )
  Hnífsdh

 Hnífsdalur 
ökuhraði

Vegur á 
Bolafjall
opnaður 5. júlí
2002
í vinnslu
8a Óshlíð -  vegskálar  ( X ) 8b Óshlíð - Óshyrna ( X )


 
 
 
Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
    Gestabók - Póstur


 
 

Uppfært 17.04.2003