| Séð
ofan frá Steingrímsfirði í suðvesturátt
yfir í Gilsfjörð. Neðst til vinstri er bærinn
Húsavík og vegurinn upp á Tröllatunguheiði
beint út frá þjóðveginum, sem þar
liggur hjá. Vogurinn neðst á miðri mynd sem
vegurinn liggur yfir nefnist Tungugrafarvogur. Neðst til hægri
er bærinn Hrófá við samnefnda á. Á
miðri mynd er Tröllatunguheiði og undir henni fyrir miðju
bærinn Tröllatunga. Til vinstri við hana er Tungudalur og
eftir honum rennur Tunguá en hægra megin Arnkötludalur
og rennur Arnkötludalsá eftir honum. Fremst í
dalnum er bærinn Arnkötludalur sem kominn er í eyði.
Þar sem Tunguá og Arnkötludalsá sameinast heitir
Hrófá. Lengst til vinstri er Miðdalur og til hægri
við hann Heiðabæjarheiði.
Efst til hægri glittir í Reykjanes og Þorskafjörð. Rætt hefur verið um að leggja mætti nýjan veg í Arnkötludal hægra megin við Arnkötludalsá og því komast hjá ræsa- eða brúargerð. |
||
|
||
|
||
|
Uppfært 10.10.2000 |