Strandir
Vegurinn
um Strandir milli Hólmavíkur og Brúar í Hrútafirði
varð fyrst akfær 19xx. Þessi kafli er um 115 km.
Enn eru ólagðir um 50 km af slitlagi á tveimur köflum
15 og 35 km löngum en gert er ráð fyrir að fljótlega
verði lagt slitlag á kafla í norðnverðum Kollfirði.
Tveir hálsar eru á leiðinni, Ennisháls milli Kollafjarðar
og Bitrufjarðar (xm) og Stikuháls (xm). Víða
eru blindhæðir, einbreitt slitlag og einbreiðar brýr
og hafa óhöpp verið nokkuð tíð. Byggð
á Ströndum á nokkuð undir högg að sækja
en er þó til þess að gera þétt miðað
við það sem víða gerist í dreifbýli
á Vestfjörðum. Lengst er milli bæja frá
Broddanesi yfir í Skriðinsenni um xx km. Þótt
syðstu hrepparnir í Strandasýslu tilheyri enn Vestfjarðakjördæmi
hefur orðið vart tilhneigingar til að leita frekar þjónustu
til þeirra þéttbýlisstaða sem nær eru,
eins og t.d. Hvammstanga, Búðardals eða í Borgarnes
enda mun styttra úr syðsta hlutanum þangað en til
Hólmavíkur.
Í
langtímaáætlun í vegamálum til 2010 er
það óútkljáð hvort lagður verði
heilsársvegur þessa leið eða frá Hólmavík
um Arnkötludal og Gautsdal yfir í Gilsfjörð.
Línurit
af tveimur hálsum, bæarkort.