 |
Væntanlegur
vegur frá Kollafirði yfir eða
undir Kleppsvík (X)
Kort:
Guðmundur Ó. Ingvarsson
|
 |
Þeir möguleikar
sem greina koma fyrir
legu Sundabrautar um Kleppsvík
(X)
Kort:
Guðmundur Ó. Ingvarsson |
|
|
Ein mesta framkvæmd
sem ráðist verður í næstu árum í
samgöngumálum, ef að líkum lætur, er lagning
Sundabrautar, en hafist var handa við undirbúning hennar á
árinu 1996. Þótt lega brautarinnar hafi ekki
verið útkljáð að öllu leyti, er í
aðalatriðum gert ráð fyrir að hún liggi af
Vesturlandsvegi undir hlíðum Esju yfir Kollafjörð í
Álfsnes og þaðan á fyllingu yfir Leirvog í
Geldinganes og áfram í Gufunes þaðan sem hún
mun liggja yfir annað hvort Elliðavog eða Kleppsvík
í austurbæ Reykjavíkur.
(Sjá
einnig grein um 4 km jarðgöng undir Kleppsvík frá
Gufunesi að Kirkjusandi (X).)
Samkvæmt langtímaáætlun
í vegamálum (X),
er ráðgert að verja til hennar 185 m.kr. á árunum
1999 til 2002, 722 m.kr. á árunum 2003 til 2006 og 1.238
m.kr. á árunum 2007 til 2010. Hætt er við
að þessir fjármunir hrökkvi þó skammt
til að ljúka gerð brautarinnar.
Alþingi ákvað
á vordögum 2002 (X)
að bæta við þessaar fjárveitingar kr. 200 millj.
á árunum 2002 til 2004.
Hjá Reykjavíkurborg
er í gangi könnun á möguleikum á svonefndri
einkafjármögnun við lagningu brautarinnar. Sjá
lið 38 í fundargerð borgarráðs frá 24.
febrúar 1998 (X).
Á vef Línuhönnunnar
hf. (X) er að finna margháttaðar
upplýsingar um verkið í skýrslu sem ber nafnið
"Sundabraut - Matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum
Sundabrautar" og gefin var út í lok desember 2000 (X).
|