Lög Vegar
félags áhugamanna um bættar vegsamgöngur
1. gr.
Félagið heitir Vegur.
2. gr.
Allir sem áhuga hafa á bættum
vegsamgöngum hafa rétt til að gerast félagar.
3. gr.
Tilgangur félagsins er :
a) Að halda úti heimasíðu
um vega- og samgöngumál.
b) Að beita sér fyrir bættum
og greiðari samgöngnum um landið.
4. gr.
Stjórn félagsinsskipa tveir menn,
formaður og varaformaður.
Stjórn félagsins boðar til
funda félagsins og ákveður dagskrá. Aðalfundur
skal haldinn eftir ákvörðun félagsstjórnar.
5. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta
á aðalfundi með samþykki einfalds meirihluta fundarmanna.
6. gr.
Lög þessi taka gildi 21. september
1999.
|