Fjórðungssamband
Vestfirðinga
Ályktun
starfshóps
Fjórðungssambands
Vestfirðingaí
vega-
málum fjórðungsins
frá 1997
(X) |
 |
43.
Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í september
1998 ályktaði sem hér segir í samgöngumálum
fjórðungsins:
Tillaga um flýtifjármögnun
vegaframkvæmda á Vestfjörðum
-
43. Fjórðungsþing
Vestfirðinga haldið í Stjórnsýsluhúsinu
á Ísafirði dagana 26. og 27. september, felur stjórn
Fjórðungssambandsins að halda áfram að leita
leiða til að flýta fjármögnun brýnustu
vegaframkvæmda á Vestfjörðum.
Greinargerð
Öllum er ljóst
mikilvægi þess að brýnustu vegaframkvæmdir
á Vestfjörðum þar með talið hringtengingu
Vestfjarða og tengingu við þjóðveg númer
1 sé flýtt sem kostur er. Miðað við núverandi
framlag
til vegamála á Vestfjörðum skv. stefnumótun
Fjórðungsþings í vegamálum, mun þessi
vegagerð taka á annan áratug. Brýnt er vegna
byggðaþróunar í fjórðungnum að leita
allra mögulegra leiða til að styrkja byggðir og efla tengsl
þeirra. Fjórðungsþing felur því
stjórn Fjórðungssambandsins að hefja viðræður
við stjórnvöld um möguleika á sérstakri
fjármögnun þessara framkvæmda, s.s. með sölu
ríkiseigna og ráðstöfun andvirði þeirra
til vegagerðar. Ljóst er að ef hægt væri
að bjóða út mjög stór verkefni í
einu, s.s. stórverkefnin Flókalund-Bjarkalund og Djúpveg,
myndi það draga verulega úr framkvæmda-kostnaði.
Fjórðungsþing
fagnar auknu fé sem veitt var til viðhalds vega í fjórðungnum.
Samþykkt samhljóða
Tillaga um snjómokstur
-
43. Fjórðungsþing
Vestfirðinga haldið í Stjórnsýsluhúsinu
á Ísafirði dagana 26. og 27. september 1998, krefst þess
að tekinn verði upp snjómokstur um djúp, að minnsta
kosti fjóra daga vikunnar. Í dag er mokað frá
Reykjavík til Hólmavíkur fjórum sinnum í
viku, en um djúp þrisvar sinnum. Það er sjálfsögð
réttlætiskrafa að þessi mokstur verði samræmdur
með auknum snjómokstri um Djúp.
Samþykkt samhljóða
Tillaga vegna flugsamgangna
milli V-Barðastrandarsýslu og Ísafjarðar
-
43. Fjórðungsþing
Vestfirðinga haldið í Stjórnsýsluhúsina
á Ísafirði dagana 26. og 27. september 1998, krefst þess
að flugsamgöngur milli V-Barðastrandarsýslu og Ísafjarðar
verði tyggðar. Milli þessara svæða er vart
um aðra samgönguleið að ræða en flug, a.m.k.
ekki yfir vetrarmánuðina.
Á milli þessara
staða er mikil samvinnna og öruggar samgöngur því
lykilatriði til að sú samvinna geti átt sér
stað.
Þingið skorar
á alla hlutaðeigeiandi aðila að beita sér nú
þegar í því að flugsamgöngur milli þessara
staða verði tryggðar.
Greinargerð
Mikilvægt er að
Íslandsflug eða annar flugrekstraraðili sé styrktur
til þess að halda uppi a.m.k. tveimur ferðum í viku
milli Bíldudals og Ísafjarðar.
Samgöngur milli Barðastranadarsýslu
og Ísafjarðarsýslu eru mjög slæmar.
Að vetrarlagi eru Dynjandis- og Hrafnseyararheiðar ófærar.
Þjónustu er þá ekki hægt að sækja
til Ísafjarðar nema með flugi gegnum Reykjavík sem
tvöfaldar kostnað og ferðatíma. Ef Ísafjörður
á að vera þjónustukjarni Vestfirðinga verður
að vera hægt að komast milli sveitarfélaga með
einföldum hætti.
Samþykkt samhljóða
Tillaga um samgöngur
milli norður- og suðurhluta Vestfjarða
-
43. Fjóðungsþing
Vestfirðinga haldið í Stjórnsýsluhúsina
á Ísafirði dagana 26. og 27. september 1998 samþykkir
að fara þess á leit við Atvinnuþróunarfélag
Vestfjarða í smar´ði við Byggðastofnun að
það láti fara fram úttekt á gildi vegar
milli Þingeyrar og Bíldudals.
Greinargerð
Algjört samgönguleysi
milli þessara byggða að vetrarlagi hefur um árabil
staðið í vegi fyrir nauðsynlegum samskiptum atvinufyrirtækja
á svæðunum. Fjóðrungsþing
telur að afar mikil og brýn þörf sé fyrir
greiðar samgöngur þessa leið sérstaklega í
fiskflutningum en einnig á öðrum sviðum, s.s. sorpflutningum.
Fjórðungsþing
telur einnig nauðsynlegt að Atvinnuþróunarfélag
Vestfjarða geri hagkvæmniathugun á lausnum sem til bráðabirgða
gætu leyst þennan flutningavanda, uns fullnægjandi heilsársvegur
hefur verið byggður.
Samþykkt samhljóða
|