Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
Afstaða þingmanna
Á þessari síðu er fyrirhugað að setja inn afstöðu þingmanna Vestfjarðakjördæmis (og annarra þingmanna, sem tjá vilja sig um efnið) til nokkurra atriða sem tengjast samgöngum á Vestfjörðum .  Spurningar sem svör óskast við og voru send þeim í byrjun mars 1998 eru svohljóðandi:  (Orðalagi hefur lítið eitt verið breytt við síðustu uppfærslu síðunnar til samræmis við breytt lög og samþykktir Alþingis).
Þingmenn Vestfjarðakjördæmis eru nú þessir:
1. Einar K. Guðfinnsson 2. Sighvatur Björgvinsson 3. Kristinn H. Gunnarsson 4. Guðjón A. Kristjánsson 5. Einar Oddur Kristjánsson
? Svar ekki borist ? Svar ekki borist ? Svar ekki borist Tók sæti á Alþingi 
í júní 1999 
? Svar ekki borist


1) Hvernig telur þú rétt að raða einstökum framkvæmdum í tímaröð, ertu sammála núgildandi vegaáætlun ?  Er t.d. ekki eðlilegt að ráðst í veginn um Arnkötludal og Gautsdal (Tröllatunguheiði) áður en farið verður í aðrar framkvæmdir í Ísafjarðardjúpi, þar sem hann stytti vegalengdir hvað mest og kæmi flestum fyrst að gagni auk þess sem væntanlega yrði fyrr hætt að aka hinn lélega veg um Þorskafjarðarheiði ?

2) Hvernig verður samgöngum milli norður og suðursvæðis Vestfjarða háttað meðan unnið verður eftir langtímaáætlun í vegamálum ?

3) Hvar sérðu fyrir þér næstu jarðgöng á landinu ? Sjá jarðgöng (X)

4) Hvenær má gera ráð fyrir að farið verði að halda veginum austur Barðastrandarsýslu opnum yfir veturinn og þannig minnka þörfina fyrir ferjusiglingar yfir Breiðafjörð ? Hver er að þínu mati framtíð ferjusiglinga um Breiðafjörð ?  Sjá ferjur (X)



 
(Enn hefur aðeins einn þingmaður Vestfjarða svarað.  (Það var Gunnlaugur Sigmundsson (X), en hann gaf ekki kost á sér við síðustu alþingiskosningar og hefur nú látið af þingmennsku (sjá svör hans hér :) 
Þá hefur Guðjón Arnar Kristjánsson tekið sæti á Alþingi eftir síðustu kosningar til Alþingis í maí 1999. 



Þingmenn þess kjördæmis sem Vestfirðir nú tilheyra samkvæmt nýrri kjördæmaskipan, sem samþykkt var á árinu 1999 og stundum er nefnt Vesturkjördæmi og samnastendur af Norðurlandi Vestra að frátöldum Siglufirði, Vestfjörðum og Vesturlandi eru eftirtaldir :
 

Þingmenn þess kjördæmis sem Vestfirðir nú tilheyra samkvæmt nýrri kjördæmaskipan, sem samþykkt var á árinu 1999 og stundum er nefnt Vesturkjördæmi og samnastendur af Norðurlandi Vestra að frátöldum Siglufirði, Vestfjörðum og Vesturlandi eru eftirtaldir :


Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
         Gestabók - Póstur


 Síðast uppfært 20.01.2000