Grein í vikublaðinu Vestra fimmtudaginn 5. mars 1998



Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður skrifar:



Hvernig verða tryggðar samgöngur milli norður- og suðursvæðis Vestfjarða?


   Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar í atvinnulífi á Vestfjörðum.  Þar á meðal að fyrirtæki starfa í æ ríkari mæli á stærra svæði en einu byggðarlagi.  Því skipta greiðar samgöngur milli svæða verulegu máli við rekstur fyrirtækjanna. Segja má að atvinnulegir hagsmunir milli norður og suðursvæðis Vestfjarða séu orðnir gríðarlega miklir og þörfin fyrir tryggar samgöngur milli þeirra hafa aukist á undanförnum árum.  Fyrirtæki á Bíldudal, í Tállknafiirði og á Brjánslækeru í tengslum við atvinnurekstur á norðursvæðinu svo dæmi sé u nefndog ekkert vafa mál að þróunin verður frekar í þessa átt.
   Til þess að nbregðast við þarf miklar og gríðalega dýrar framkvæmdir í vegagerð, jarðgögn milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, síðan veg um Arnarfjörð til Bíldudlas eða um Dnandisheiði í Vatnsfjörð.  Fyrir liggur að aðrar framkvmdir í kjördæminu verða á undan meðal annars uppbygging vegar frá Patreksfirði í Vatnsfjörð og svo þaðan inn sýsluna til  Reykhóla.  Ekki verður ráðist í þessar framkvæmdir næstu 13 árin samkvæmt langtímaáætlun ríkisstjórnarinnar í vegagerð sem liggur fyrir Alþingi og er til umfjöllunar, en gert er ráð fyrir rannnsóknum á jarðgangasvæði.  Engin jarðgöng verða gerð á tímabilinu samkvæmt áætluninni.
   Ég hef áður kynnt afstöðu Alþýðubandalsgsins sem er að veita árlega  um einum milljarði króna í jarðgangaframkvæmdir á og að jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar verði unnin þá.

Afturför á undanförnum árum

Til þess að mæta vaxandi þörf og kröfum um samgöngur milli svæðanna þarf að bregðast við með því að tryggja daglegar samgöngur þarna á milli eða svo gott sem allan ársins hring.  Það eru þrjár leiðir til þess, sjóleiðin, flug eða vegur.  Ekki hefur verið reynt að halda uppi siglingum mili svæðanna og siglingaleiðin talin of löng og og mikið fyrir opnu hafi.  Flugfélagið Ernir
hélt uppi samgöngum milli svæðanna 5 daga í viku en það lagðist af meðal annars vegna þess að ríkið hætti að styrkja flugið óbeint eins og gert var í raun með póstfluginu.  Svo að þessu leyti hefur orðið afturför á seinni árum.
 
 
 

Til baka

Upp aftur