| Færð á
vegum landsins mánudagskvöldið 3. apríl 2000.
Vestur-Barðastrandarsýsla er algerlega einangruð frá
öðrum hlutum landsins,
svo og Árneshreppur á Ströndum. Að öðru leyti er góð vetrarfærð um allflesta aðalvegi landsins. Þó verður ekki komist um aðrar heiðar á Vestfjörðum en Steingrímsfjarðarheiði, ekki um veginn um Lágheiði milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, ekki um Hellisheiði eystri, sem er stysta leið milli Vopnafjarðar og Héraðs og loks er Suðurstrandarvegur mili Þorlákshafnar og Grindavíkur ófær. |
||||
|
|
||||
Kort: Vegagerðin
(X)
|