Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Valkostir - Byggð - Vetrarumferð - Ferjur - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
Leið 5 - Vesturleið 

Langt er í land með að Vesturleið geti talist fullnægjandi heilsársleið.  Má skipta því sem ógert er í fjóra áfanga (sjá kort og hlekki á bak við þau):
A) Dýrafjörður - Arnarfjörður B) Arnarfjörður
Vatnsfjörður 
 C) Vatnsfjörður -  Kollafjörður D) Kollafjörður -Gilsfjörður

Almennt um efnið


Vesturleið er sú leið, sem lengst á í land með að verða að raunveruleika af þeim leiðum sem til greina koma sem heilsársleið milli norðanverðra Vestfjarða og Suðvesturlands þar mest er óunnið á henni, mestur kostnaður er við að ljúka henni og hún vart farin árið um kring fyrr en miklar framkvæmdir hafa áður átt sér stað.  Þar munar mest um Hrafnseyrarheiði, en tæpast verður komist milli Dýrarfjarðar og Arnarfjarðar nema um jarðgöng og því verður þessi leið ekki farin að vetri fyrr en slík göng hafa verið grafin.  Þá er hætt við að Dynjandisheiði verði nokkur farartálmi.  Þó verður ekki séð með hliðsjón af t.d. reynslunni af veginum yfir Hálfdán að Dynjandisheiði ætti að verða erfiðari yfirferðar en t.d. Steingrímsfjarðarheiði eða Öxnadalsheiði ef vegur yrði vel úr garði gerður.  Einnig er sá möguleiki fyrir hendi, að leggja veg meðfram Dynjandisvogi að sunnanverðu, upp Kirkjubólsdal um Helluskarð, sem að vísu lengir leiðina um örfá km.  Sá möguleiki er einnig inni í myndinni að fara með ströndinni allt í Trostansfjörð.  Þess ber að gæta að komið er á annað spásvæði Veðurstofunnar þegar komið er upp á Dynjandisheiði en gildir norðar á Vestfjörðum og ætlandi að þar séu veður að jafnaði ekki eins hörð og á heiðum á norðanverðum fjörðunum.
 
Vedurstofukort Arnafjörður snævi þakinn 
niður í fjöru 08.11.1998
Barðaströnd snjólaus nema 
efst í fjöllum 08.11.1998
Sunnanverðir Vestfirðir eru ekki í akvegasambandi við aðra hluta landsins nema hluta úr ári, en samkvæmt langtímaáætlun í vegamálum er stefnt að því að lokið verði við lagningu heilsársvegar austur Barðastrandarsýslur eigi síðar en árið 2010.  Verður, þegar verið er að ræða heildarkostnað við leiðir af norðanverðum Vestfjörðum inn á hringveginn, að taka kostnað af þessar vegarlagningu með í reikninginn.
Vegagerðarkort.  Svo sem sjá 
má eru sunnanverðir Vestfirðir
einangraðir frá öðrum hlutum 
landsins.
Langtímaáætluní 
vegamálum til 2010

Vesturleið hefur þá kosti í för með sér að tengja saman suður- og norðursvæði Vestfjarða og nýtast þannig miklum meirihluta íbúa fjórðungsins. Flest hin dýrari samgöngumannvirki sem gerð hafa verið á Vestfjörðum síðustu ár, svo sem göng undir Breiðadalsheiði og brýr yfir Önundarfjörð, Dýrafjörð og Gilsfjörð, nýttust enn betur en nú er.
 

Gangamunni í göng 
undir Breiðadalsheiði
Brú og fylling yfir 
Önundarfjörð
Dýrafjarðarbrú Gilsfjörður
Á þessari leið eru mestir möguleikar á styttingu vegalengda.  Frá Þingeyri er t.d. 90 km styttra til suðvesturlands þessa leið en um leið 2.  Hægja mætti á uppbyggingu vega í innanverðu Ísafjarðardjúpi þar sem íbúum fækkar stöðugt (sjá staða byggðar) og nýta fjármunina í þessa leið.  Ódýrara er að sinna viðhaldi og annast snjómokstur á einni leið en á tveimur leiðum.  Yfir veturinn er að því aukið öryggi fyrir vegfarendur að sem flestir fari sömu leið o.s.frv. Með vegi frá Flókalundi austur Barðastrandarsýslur mætti spara íbúum sem það kjósa að sigla með ferju og skattgreiðendum niðurgreiðslur með ferjurekstri.
Séð frá Skálanesi yfir á 
Reykjanes
Ferjan Baldur
 
Um einstaka hluta leiðarinnar sjá nánar hlekki efst á síðunni.

Vegalengdir milli Ísafjarðar og Reykjavíkur eftir leið sem valin er

 1 - Um Djúp og Strandir - vetur
 533 
 1 - Um Djúp og Strandir - sumar 
 499 
 4 - Um Djúp og Kollafjarðarheiði 
 464 
 5 - Vesturleið í dag 
 455 
 4 - Um Djúp og Tröllatunguheiði 
 455 
 3 - Um Djúp og Þorskafj.heiði 
 439 
 5 - Vesturleið - eftir styttingar
 396 (hámark)

Til baka

Upp
Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Valkostir - Byggð - Vetrarumferð - Ferjur - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur

Uppfært 09.04.2000
 

1 Bolungarvík   -  2 Ísafjarðardjúp -  3  Steingrímsfjarðarheiði -  4  Þorskafjarðarheiði  -  5  Kollafjarðarheiði -  6  Hólmavík Gilsfjörður -  7  Strandir
8 - Dýrafjörður -Arnarfjörður)  -  9  Arnarfjörður-Vatnsfjörður   10 - Vatnsfjörður-Kollafjörður   11 - Kollafjörður - Gilsfjörður  12 - Gilsfjörður-Borgarnes