Hnífsdalur - ökuhraði
Á tæpra eins kílómetra kafla milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur  (ca. 800 metra) í gegn um Hnífsdal er hámarkshraði 35 km/klst.   Þótt e.t.v. sé ekki um ýkja langan kafla að ræða tefur þetta nokkuð akstur milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og verður ekki séð að margt mæli því í gegn að heimila 50 km/klst hraða á þessari leið.  Mestur hluti leiðarinnar er með góða vegsýn til beggja átta og hindrunarlaus.  Bifreiðum er ekki lagt á veginum og verslun sem eitt sinn var þar hefur nú hætt rekstri.   Þótt keyrt sé meðfram íbúðabyggð er aðeins um örfá hús að ræða á stuttum kafla og ekki búið nema í sumum þeirra.  Hættu þar mætti merkja með umferðarskiltum og eins mætti setja girðingar meðfram gangstéttum eða jafnvel hraðahindrun.  Um veginn í gegn um Hnífsdal og um Óshlíð fara að meðaltali um 600 bifreiðar á dag.
Það tefur akstur á 800 metrum um nálægt hálfa mínútu að aka með 35 km hraða á klukkustund í stað 50 km hraða á klukkustund.  Þótt hálf mínúta sé e.t.v. ekki langur tími (gróft reiknað sá tími sem það tekur að lesa það sem að framan er ritað) er það til að skaprauna vegfarendum að þurfa að sæta reglum sem þessum þegar ekki eru sýnileg rök fyrir þeim.  Slíkt kemur niður á einbeitingu og jákvæðu hugarfari ökumanna.

1 ) Séð inn Hnífsdal.  Fimm götur liggja úr þéttbýlinu inn á 
veginn gegn um bæinn. 
Íbúar Í Hnífsdal voru 284 1. desember 2001.
2 ) Hnífsdalur.  Nær er Eyrarhlíð og fjær Búðarhyrna og vegurinn 
út á Óshlíð.
3 ) Utan við Hnífsdal Óshlíðarmegin.  Lengst til vinstri sér í Heima-
bæ, sem ekki er lengur búið í vegna snjóflóðahættu. Fyrir miðri mynd sér í hesthús.
4 ) Sama og mynd 4.
5 ) Séð inn Hnífsdal af veginum að hesthúsum. Víð sýn er til beggja 
átta allt þar til komið er fram hjá félagsheimilnu lengst til hægri 
á myndinni.
6 ) Séð inn Hnífsdal af veginum að hesthúsum. Svo sem merkið
sýnir er stöðvunarskylda inn á þjóðveginn.  Þar fyrir innan er merki
um að ekki skuli ekið hraðar en á 35 km/klst.
7)  Komið að þéttbýlinu í Hnífsdal frá Bolungarvík. 8 ) Séð yfir Hnífsdal frá fjölbýlishúsinu lengst til vinstri á mynd 
nr. 9 
9 ) Ekið inn í þéttbýlið í Hnífsdal áleiðis til Bolungarvíkur.  
35 km/klst skilitið til hægri er vel utan við ysta húsið í byggðinni.  
Svo sem sjá má er fátt sem hindrar sýn ökumanna.
10 ) Þegar ekið er lengra inn í byggðina eru alls fjórar þvergötur
á vinstri hönd.  Önnur í röðinni er Heiðarbraut, sem er til vinstri á myndinni.  Eina íbúðarhúsið hægra megin við veginn er græna húsið í fjarska neðarlega til hægri á myndinni, en ekki er búið í því lengur.
11 ) Þegar komið er fram hjá aðalþéttbýlinu til vinstri, þegar ekið er áleiðis til Bolungarvíkur, er umhverfi vegarins eins og myndin sýnir.
Aðeins eitt íbúðarhús á hægri hönd.  Ekki er lengur búið í því enda
illa farið og hugmyndir um að rífa það. 
12 ) Þegar áfram er haldið gegnum Hnífsdal er útsýn ökumanna
þessi.
13) Séð eftir veginum gegnum Hnífsdal.  Svo sem sjá má eru fáar hindranir fyrir ökumenn á leið gegn um bæinn.  Þó kemur fyrir að hestamenn séu á ferð eins og skiltið t.h. ber með sér.  Til hægri í
fjarska sér í aflagða sorpeyðingarstöð á Skarfaskeri.  Beint undir því
á myndinni er skilti sem segir að þéttbýli sé lokið og því megi
auka hraða úr 35 km í 80 km á klukkustund.
3 ) Hér er komið vel út fyrir alla byggð í Hnífsdal.  Þó er enn langt
að skilti sem merkir að þéttbýli sé lokið og þar með að auka megi
hraða úr 35 km á klst í þá 80 km á klst, sem leyfður er á Óshlíð.
Ef vel er gáð sést það bera við himinn til hægri við veginn upp í
hesthús.

Nauðsynlegt er að breyta þessari miklu skerðingu á leyfðum hámarkshraða, sem að langmestum hluta er þar sem vegsýn er góð og hindrunarlaus.  Á það skal minnt, að innan bæjarmarka Bolungarvíkurkaupstaðar er leyfður 50 km hámarkshraði, en fæstir aka á þeim hraða þar nema e.t.v inn í bæinn.  Samkvæmt umferðarlögum ákveður dómsmálaráðherra hraðamörk skv. 3. og 4. mgr. 37. gr. umferðarlaga, að fengnum tillögum vegamálastjóra, ef um þjóðveg utan þéttbýlis er að ræða. Á öðrum vegum ákveður lögreglustjóri hraðamörkin, að fengnum tillögum sveitarstjórnar.
Þéttbýli er í umferðarlögum skilgreint sem svæði afmarkað með sérstökum merkjum, sem tákna þéttbýli.


Uppfært 22.01.2002