Bil
milli ökutækja - framúrakstur
Til
eru nokkrar aðferðir við að meta heppilega fjarlægð
í næsta bíl fyrir framan þegar ekið er á
vegum úti.
Ein
helsta reglan er stundum nefnd "þriggja sekúndna reglan."
Reglan felur það í sér að þegar næsti
bíll á undan fer fram hjá einhverjum föstum punkti
eða kennileiti; vegstiku, umferðarmerki eða þ.h. telur
ökumaðurinn sem á eftir fer sem svarar þremur sekúndum,
1..., 2...,3. Ef hann er ekki komin að kennileitinu áður
en talningunni lýkur ætti bilið milli ökutækjanna
að vera nægilegt, að sjálfsögðu miðað
við bestu aðstæður.
Önnur
regla segir: Hafðu bilið að næsta bíl í
metrum talið sömu tölu og hraðamælirinn sýnir,
þ.e. 60 metra á 60 km hraða, 70 metra á 70 km hraða,
90 metra á 90 km hraða o.s.frv.
Í umferðarlögum nr.
50/1987 er í 4. kafla "Umferðarreglur fyrir ökumenn" svohljóðandi
ákvæði um
framúrakstur : Helstu
ákvæði eru undirstrikuð:
Framúrakstur.
20. gr. Aka skal
vinstra megin fram úr ökutæki. Þó skal
aka hægra megin fram úr ökutæki, ef ökumaður
þess beygir til vinstri eða undirbýr greinilega vinstri
beygju. Hjólreiðamaður má fara hægra megin
fram úr öðrum ökutækjum en reiðhjólum.
Ökumaður,
sem ætlar fram úr ökutæki, skal ganga úr
skugga um, að það sé unnt án hættu, og
athuga sérstaklega:
a. að
akrein sú, sem nota á til framúraksturs, sé
án umferðar á móti á nægilega löngum
kafla og að ekki sé annað, er hindri framúraksturinn,
b. að
sá, sem á undan er, hafi ekki gefið merki um, að
hann ætli að aka fram úr öðru ökutæki,
c. að
enginn, sem á eftir ekur, hafi byrjað akstur fram úr
honum, og
d. að
hann geti komist inn í umferðarstrauminn á ný
án óþæginda fyrir aðra, þegar framúrakstri
lýkur. Þetta á þó eigi við um
framúrakstur á akrein þar sem mótumferð
er óheimil.
Sá, sem ekur
fram úr, skal hafa nægilegt hliðarbil milli ökutækis
síns og þess, sem ekið er fram úr. Sá, sem
ekið hefur vinstra megin fram úr, skal aka til hægri á
ný, svo fljótt sem unnt er án hættu eða
óþæginda. Hann þarf þó ekki að
aka til hægri, ef ætlunin er að aka þá þegar
fram úr enn öðru ökutæki og skilyrði til
framúraksturs eru að öðru leyti fyrir hendi.
Aka má fram
úr ökutæki í vegavinnu á þann hátt
sem hentugastur er, enda sé sýnd full aðgæsla.
21. gr. Þegar
ökumaður verður þess var, að ökumaður,
sem á eftir kemur, ætlar að aka fram úr vinstra
megin, skal hann vera með ökutæki sitt eins langt til hægri
og unnt er. Má hann ekki auka hraðann eða torvelda framúraksturinn
á annan hátt.
Ef ökutæki
er ekið hægt eða er fyrirferðarmikið og akbraut er
mjó eða bugðótt eða umferð kemur á
móti, skal ökumaður gæta sérstaklega að
umferð, sem kemur á eftir. Ef það getur auðveldað
framúrakstur skal hann aka til hliðar eins fljótt og
unnt er, draga úr hraða og nema staðar, ef þörf
krefur.
Bann við framúrakstri.
22. gr. [Eigi má
aka fram úr öðru ökutæki rétt áður
en komið er að vegamótum eða á þeim. Heimilt
er þó að aka fram úr öðru ökutæki
ef skilyrði til framúraksturs eru að öðru leyti
fyrir hendi og
a. ökutækin
eru á akbraut með tveimur eða fleiri akreinum í akstursstefnu
þeirra,
b. aka skal
hægra megin fram úr vegna ökutækis sem beygt er
til vinstri,
c. umferð
á vegamótum er stjórnað af lögreglu eða
með umferðarljósum, eða
d. umferð
hefur forgang gagnvart umferð af hliðarvegi, sbr. 2. mgr. 25. gr.]1)
Eigi má heldur
aka fram úr öðru ökutæki, þegar vegsýn
er skert vegna hæðar eða beygju á vegi, nema unnt
sé að aka fram úr á akrein þar sem umferð
á móti er óheimil.
Ákvæði
greinarinnar á ekki við um akstur fram úr reiðhjóli
eða léttu bifhjóli.
1)L.
44/1993, 5. gr.
Framúrakstur og
akreinaskipti í [þéttri umferð].1)
1)L.
62/1988, 1. gr.
23. gr. Í þéttri
umferð ökutækja á tveimur eða fleiri akreinum
í sömu akstursstefnu þar sem hraðinn ræðst
af þeim, sem á undan fara, má aka hægra megin
fram úr ökutæki á annarri akrein. Þegar
þannig stendur á má ekki skipta um akrein, nema þess
þurfi til að beygja á vegamótum, aka af akbraut,
stöðva ökutæki eða leggja því.
Aka má fram
úr ökutæki, ef öðru ökutækjanna er
ekið á akrein, sem ætluð er sérstakri tegund
umferðar.
Framúrakstur við
gangbraut.
24. gr. Eigi má
aka fram úr ökutæki rétt áður en komið
er að gangbraut eða á henni. Ef umferð við gangbraut
er stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum,
má þó aka fram úr ökutæki, ef það
hindrar eigi útsýn yfir gangbrautina.
Uppfært
01.05.2002
|