Þessi vefur er helgaður samgöngum á Vestfjörðum,
einkum vegsamgöngum - í fortíð, nútíð
og framtíð. Þótt samgöngur í
fjórðungnum hafi tekið stórstígum framförum
á undanförnum árum er enn talsvert í land með
að þær teljist fullnægjandi. Á það
fyrst og fremst við um samgöngur á landi - vegsamgöngur
- sem verða sífellt mikilvægari.
Nú er svo komið, að flestir nálægir þéttbýlisstaðir
á Vestfjörðum hafa verið tengdir saman innbyrðis
með góðum heilsársvegum. Á hinn bóginn
vantar nokkuð á, að
fullnægjandi
vegsamband sé frá flestum þessara staða til annarra
hluta landsins og ekki einhugur um hvaða leið sé vænlegust.
Margir eru þeirrar skoðunar, að rétt sé að
halda áfram og ljúka uppbyggingu vegar um Ísafjarðardjúp
inn á hringveginn fyrir byggð á norðanverðum
Vestfjörðum, austur Barðastrandarsýslu fyrir byggð
á sunnanverðum fjörðunum, en láta tengingu milli
þessara svæða bíða. Aðrir leggja meiri
áherslu á tengingu þessara svæða og síðan
sameiginlegan veg inn á hringveginn. Fyrir leið á
norðanverðum fjörðunum er síðan um marga kosti
að ræða; leiðina um Djúp og Strandir; leiðina
um Djúp til Hólmavíkur og þaðan í
Gilsfjörð og loks leiðina um Djúp og yfir Þorskafjarðar-
eða Kollafjarðarheiði. |
|
 |
Það
viðfangsefni, sem þessum vef er ætlað að fjalla
um, er bæði yfirgripsmikið og margþætt. Því
er í raun aðeins tæpt á því helsta
sem málið varðar. Að sjálfsögðu
er leitast við að hafa staðreyndir réttar en án
efa er eitthvað missagt. Víða mætti bæta
við ljósmyndum og eftir atvikum kortum til fyllingar texta eða
til skýringar og er það oftar en ekki vegna þess
að höfundur hefur ekki fundið myndir sem hæfa umfjöllunarefninu.
Þá mættu þær myndir sem eru til staðar
oft vera betri en raun er á. Þar er við fáa
aðra en höfund að sakast, sem aðeins er áhugaljósmyndari.
Bestu myndirnar nást oftast úr lofti og er erfitt að
ná til alls svæðisins til loftmyndatöku svo vel sé
nema á löngum tíma.
Einn kostur hins nýja miðils - netsins - er að alltaf er
hægt að breyta því og bæta það sem
áður er sett þar fram. Þeir sem eitthvað
fylgjst með því sem hér er að finna eiga efalaust
eftir að taka eftir breytingum á efni og framsetningu af og
til, sem vonandi horfa til bóta hverju sinni og gera vefinn lifandi
og síungan. Ýmsar hugmyndir koma til greina tengdum
efni þessa vefs því möguleikarnir eru nánast
takmarkalausir. Vel má vera að hann muni í framtíðinni
ná að einhverju marki til landsins alls, það mun koma
í ljós.
Allir þeir sem eitthvað vilja leggja til mála í
máli eða myndum og tengist samgöngum hérlendis eru
hvattir til að koma þeim á framfæri svo og þeir
sem sjá eitthvað sem betur mætti fara.
Öllum þeim fjölmörgu sem veitt hafa margháttaða
aðstoð við gerð vefjarins hér með þökkuð
veitt aðstoð.
Bolungarvík, á góu 2000.
Jónas Guðmundsson |
|
|
 |
| Sérstaklega eru Tæknimyndum
ehf. færðar þakkir fyrir leyfi til afnota af þessari
mynd sem prýðir upphafssíðu vefjarins. Á
myndinni er Súgandafjörður fyrir miðri mynd og Önundarfjörður
lengra t.h. Lengst t.v. er Bolungarvík. |
|
|