Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur

  Þessi vefur er helgaður samgöngum á Vestfjörðum, einkum vegsamgöngum - í fortíð, nútíð og framtíð.  Þótt samgöngur í fjórðungnum hafi tekið stórstígum framförum á undanförnum árum er enn talsvert í land með að þær teljist fullnægjandi.  Á það fyrst og fremst við um samgöngur á landi - vegsamgöngur -  sem verða sífellt mikilvægari. 
   Nú er svo komið, að flestir nálægir þéttbýlisstaðir á Vestfjörðum hafa verið tengdir saman innbyrðis með góðum heilsársvegum.  Á hinn bóginn vantar nokkuð á, að fullnægjandi vegsamband sé frá flestum þessara staða til annarra hluta landsins og ekki einhugur um hvaða leið sé vænlegust.  Margir eru þeirrar skoðunar, að rétt sé að halda áfram og ljúka uppbyggingu vegar um Ísafjarðardjúp inn á hringveginn fyrir byggð á norðanverðum Vestfjörðum, austur Barðastrandarsýslu fyrir byggð á sunnanverðum fjörðunum, en láta tengingu milli þessara svæða bíða.  Aðrir leggja meiri áherslu á tengingu þessara svæða og síðan sameiginlegan veg inn á hringveginn.  Fyrir leið á norðanverðum fjörðunum er síðan um marga kosti að ræða; leiðina um Djúp og  Strandir; leiðina um Djúp til Hólmavíkur og þaðan í Gilsfjörð og loks leiðina um Djúp og yfir Þorskafjarðar- eða yfir eða jafnvel undir Kollafjarðarheiði.

Viðfangsefni þessa vefjar er hvort tveggja í senn yfirgripsmikið og margþætt.  Því er í raun aðeins tæpt á því helsta sem málið varðar.  Að sjálfsögðu er leitast við að hafa staðreyndir réttar en án efa er eitthvað missagt.  Víða mætti bæta við ljósmyndum og eftir atvikum kortum til fyllingar texta eða til skýringar og er það oftar en ekki  vegna þess að höfundur hefur ekki fundið myndir sem hæfa umfjöllunarefninu.  Þá mættu þær myndir sem eru til staðar oft vera betri en raun er á.   Þar er við fáa aðra en höfund að sakast, sem aðeins er áhugaljósmyndari.  Bestu myndirnar nást oftast úr lofti og er erfitt að ná til alls svæðisins til loftmyndatöku svo vel sé nema á löngum tíma.
  Einn kostur hins nýja miðils - netsins - er að alltaf er hægt að breyta því og bæta það sem áður er sett þar fram.  Þeir sem eitthvað fylgjst með því sem hér er að finna eiga efalaust eftir að taka eftir breytingum á efni og framsetningu af og til, sem vonandi horfa til bóta hverju sinni og gera vefinn lifandi og síungan.  Ýmsar hugmyndir koma til greina tengdum efni þessa vefjar og möguleikarnir eru nánast takmarkalausir.  Vel má vera að hann muni í framtíðinni ná að einhverju marki til landsins alls, það mun koma í ljós.
  Allir þeir sem eitthvað vilja leggja til mála í máli eða myndum og tengist samgöngum hérlendis eru hvattir til að koma þeim á framfæri svo og þeir sem sjá eitthvað sem betur mætti fara.
  Öllum þeim fjölmörgu sem veitt hafa margháttaða aðstoð við gerð vefjarins hér með þökkuð veitt aðstoð.

                                                                                            Bolungarvík, á góu 2000,
´                                                                                            f.h. Vegar, áhugamannafélags,
                                                                                             Jónas Guðmundsson
 

Kort á síðunum eru unnin af Sigurði K. Guðjohnsen nema 
annars sé getið og birt með leyfi Landmælinga Íslands
nr. 145-97.
Allar ljósmyndir sem birtar eru á vefnum eru teknar af 
Jónasi Guðmundssyni, nema annars sé sérstaklega getið.
Ábyrgðarmaður vefjarins er:
Jónas Guðmundsson, Miðstræti 1, 415 Bolungarvík
 
Tæknimyndum ehf. eru færðar þakkir fyrir leyfi til afnota af þessari mynd sem prýðir upphafssíðu vefjarins. 
Á myndinni er Súgandafjörður fyrir miðri mynd og Önundarfjörður lengra t.h.  Lengst t.v. er Bolungarvík. 

Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
      Gestabók - Póstur
 

Upp

Uppfært 06.05.2002.