Vegur, félag áhugamanna um bættar vegasamgöngur

Umferðarkönnun 16. og 17. ágúst 2001

Á mótum vega um Steingrímsfjarðarheiði og Þorskafjarðarheiði
 
 
 
 
 
 


 
 
 
 
 
 
 
September 2001

Haraldur Sigþórsson

Sigríður Ragna Jónsdóttir


 
 


Inngangur

Um miðjan ágústmánuð fór fram umferðarkönnun á vegamótum Steingrímsfjarðarheiðar og Þorskafjarðarheiðar. Tilgangurinn með könnuninni var annars vegar að afla almennra upplýsinga um bakgrunn vegfarenda s.s. fjölda ökutækja, kyn ökumanna, hvaðan fólk væri að koma og hvert ferðinni væri heitið. Hins vegar var spurt um afstöðu ökumanna til matskenndari atriða varðandi vegamál s.s. hvort fylgni væri við töku vegatolla, afstöðu til hámarkshraða og val aksturleiða. 

Upplýsingar um vegfarendur 

Alls 426 ökutæki voru stöðvuð og skráðar upplýsingar um ferðir þeirra. 

Kyn

Langstærsti hluti bílstjóra var karlkyns eða tæp 84% allra.

Fjöldi í bíl

Í 42% tilvika voru farþegar tveir í hverjum bíl. Aðeins í fimm prósent tilvika voru farþegar fleiri en fimm í bíl, og er þá átt við langferðabíl.

Flokkur ökutækis

Mestur hluti allra ökutækjanna var/voru fólksbílar eða tæp 92%. Aðeins tæp sjö prósent ökutækja voru vörubílar eða rútur.

Hvaðan & hvert

Meirihluti vegfarenda, 55%, var að koma frá norðanverðum Vestfjörðum, tæpur þriðjungur var að koma Suðvesturlandi. Ferð nærri 45% vegfarenda var heitið til norðanverðra Vestfjarða, en þriðjungur vegfarenda var á leið til Suðvesturlands. 

Lögheimili tæplega 40% ökumannana var höfuðborgarsvæðið, nokkru færri (36%) voru með lögheimili á Vestfjörðum. Hins vegar voru nærri 12% vegfarenda með erlent ríkisfang. Fleiri óku Steingrímsfjarðarheiði (57%) en Þorskafjarðarheiði .
 
 

Afstaða vegfarenda til hámarkshraða, vegtolla & akstursleiða

Vegfarendur voru spurðir um afstöðu sína til nokkurra álitamála og fara niðurstöður hér á eftir.

Hver finnst þér að eigi að vera hámarkshraði á vegi eins og þessum (Steingrímsfjarðarheiði tvíbreitt slitlag ) ? 

Mikill meirihluti vegfarenda eða 86% vildi að hámarkshraði væri 90 km/klst eða jafnvel meiri. Tæp (30 %) þrjátíu prósent vildu hafa hámarkshraðann í 100 km/klst eða hærri. Fimmtán manns, eða 3.5% vildu meira að segja hækka hámarkshraðann í 110 km/klst. Því er ljóst að fylgni við hækkun hámarkshraða er mikil. Aðeins þrír bílstjórar vildu lækka hámarkshraðann.

Ertu hlynntur því að vegaframkvæmdum verði flýtt með töku vegatolla?

Flestir voru mjög eða frekar hlynntir því að taka upp vegatolla til að flýta fyrir vegaframkvæmdum eins og sést á myndinni hér fyrir neðan. Í lið 6 er fjöldi þeirra sem gáfu ekki upp skoðun sem og þeirra þar sem svar var ekki skrásett.

Akstursleiðir

Af hverju ekur / ókst þú Þorskafjarðarheiði en ekki Steingrímsfjarðarheiði?

Af þeim 365 sem veittu svör um hvora heiðina þeir fóru voru 204 sem fóru Steingrímsfjarðarheiði.

Helmingur þeirra sem óku Steingrímsfjarðarheiði gerðu það vegna þess að það lá beinna við. 23% vegfarenda óku þá leið vegna þess að þeim þótti hún þægilegri og 11% fóru Steingrímsfjarðarheiði til að auka fjölbreytni.

Af hverju ekur / ókst þú Þorskafjarðarheiði en ekki Steingrímsfjarðarheiði?

157 manns óku Þorskafjarðarheiðina og 40% þeirra völdu þá heiði vegna þess að það lá beinna við og tæp 38% voru að stytta sér leið og spara tíma.
 
 

ÁDU – Þungabílar

Samkvæmt talningum Vegagerðarinnar frá árinu 1999; Umferð á Þjóðvegum 1999, gefin út af áætlanadeild Vegagerðarinnar í maí 2001, er ársdagsumferðin á Steingrímsfjarðarheiðinni 71 bíll en ekki nema 25 bílar á Þorskafjarðarheiðinni. Sumardagsumferðin er 121 bíll á Steingrímsfjarðarheiðinni en aðeins 48 bílar á Þorskafjarðarheiðinni. Hlutfall bílaumferðar minnkar um helming á hvorri heiði fyrir sig yfir vetrartímann. Þó ber að athuga að Þorskafjarðarheiði er með öllu lokuð yfir vetrartímann að jafnaði frá mánaðarmótum október/ nóvember alveg fram í júní ár hvert. Á tímabilinu 1997-2000 var Steingrímsfjarðarheiði að meðaltali lokuð í 7.6 daga á ári hverju. Þorskafjarðarheiðin var á hinn bóginn lokuð að meðaltali í 209 daga á ári á þessu sama tímabili. 

Í könnuninni veittu bílstjórar 426 bíla svör á tveimur dögum að meðaltali 213 bílar hvorn dag (185 á fimmtudegi frá kl. 9:00 til 21:00) en 241 á föstudegi (frá kl. 10:00 til 20:00). Því má álykta að umferðin hafi verið nokkuð mikil þessa tvo daga í ágúst sem könnunin fór fram.

Þungabílar

Eins og kom fram áður voru aðeins tæp 7% vörubílar, rútur eða aðrir þungir bílar. Aðeins 3.7% allra bíla voru vörubílar.
 
 



 
 
Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur
         Gestabók - Póstur



Til baka

Upp


Uppfært 13.09.2001