Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur



Umferðarkönnun
16. og 17. ágúst 2001
á mótum vega um Steingrímsfjarðarheiði og Þorskafjarðarheiði
Sjá upplýsingar í töflureikni (excelskjali) hér:

Í flipa (sheet) 1 er allt það sem skráð var, en í flipum 2 - 12 verður að finna samandregnar upplýsingar  í myndrænni framsetningu um ýmislegt sem könnunin leiddi í ljós. 

Hér má sjá  samandregnar niðurstöður könnunarinnar í formi skýrslu, 
sem unnin var af verkfræðistofunni Línuhönnun hf.



   Alls voru skráðar einhverjar upplýsingar um ferðir 426 ökutækja á tímabilinu frá kl. 9:00 til kl. 21:00 fimmtudaginn 16. ágúst og frá kl. 10:00 til kl. 20:00 föstudaginn 17. ágúst 2001. 
   Langflestir sem um veginn fóru voru mjög fúsir að veita svör og er þeim hér með þakkað það.  Ef af einhverjum ástæðum ekki lánaðist að fá svör frá einhverjum voru þær upplýsingar skráðar sem lágu fyrir - eins og hvaða leið ökutæki ók, hvenær o.s.frv.  Oft þurfti að hafa hraðar hendur.  Því gat komið fyrir að ekki tækist að skrá allt til hlítar, það sem skráð var var ólæsilegt, ekki rétt eða að ekki var fyllt í dálk.  Þar er í excelskjalinu sett inn "X"..
   Þeir sem fóru oftar en einu sinni um veginn sama dag ( 5 til 7 hvorn dag ) voru aðeins skráðir einu sinni.
    Lionsklúbbi Hólmavíkur er hér með þökkuð veitt aðstoð við könnunina.
Frá umferðarkönnun föstudaginn 17. ágúst 2001. 
 
Spurt var um eftirtalin atriði eða þau skráð:
1  Dagur og tími þegar ökutæki ók hjá :
2  Fjöldi í ökutæki þ.m.t. bílstjóri :
3  Flokkur ökutækis:  Fólksbíll / vörubíll / rúta / annað
4  Kyn ökumanns:
5  Hvaðan kemur þú (sveitarfélag ) ?
6  Hvert ferð þú (sveitarfélag) ?
7  Hvar er lögheimili þitt (sveitarfélag / land ) ?
8  Var / verður stansað á leiðinni til að kaupa vöru eða þjónustu? 
9  Hvað ferðu þennan veg oft á ári ?  (Eftir að skrá.)
10 Hver er tilgangur með ferð þinni ?
A = atvinna  S = skemmtiferð / sumarleyfi  v = verslunarferð  x = annað
11  Hver finnst þér að eigi að vera hámarkshraði á vegi eins þessum (Steingrímsfjarðarheiði þar sem vegurinn er tvíbreiður) ?
12  Ertu hlynntur því að vegaframkvæmdum verði flýtt með töku vegtolla ? :  a) mjög hlynntur  b) frekar hlynntur  c) hlutlaus d) frekar andvígur  e) mjög andvígur
13 A   Af hverju ekur / ókst þú Þorskafjarðarheiði en ekki Steingrímsfjarðarheiði :
13 B Af hverju ekur / ókst þú Steingrímsfjarðarheiði en ekki Þorskafjarðarheiði :
T =tímasparnaður  St = styttri leið í km  Sk =skemmtilegri leið
L = liggur/lá betur við upphafsstað/áfangastað  V = vegna ökutækis
 




 
Forsíða - Um vefinn - Almennt - Annáll - Vegalengdir - Leiðir - Byggð - Vetrarumferð - Ár / sjór - Jarðgöng - Kostnaður - Afstaða  - Ýmislegt - Fréttir - Stuðningur

Uppfært 05.09.2001